- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Forvarnir eru mikilvægur þáttur í því að takast á við vá. Upplýsingar og leiðbeiningar um forvarnir og viðbrögð við hvers kyns vá er að finna á blaðsíðu 28 í Símaskránni og á heimasíðu Almannavarna ríkisins (www.avrik.is). Almenningur er hvattur til þess að kynna sér leiðbeiningarnar vel.
Almennar leiðbeiningar:
Á heimilum og vinnustöðum ætti fólk að ræða saman um hugsanlegar hættur, ræða tryggingamál, skoða útgönguleiðir hússins og kanna staðsetningu öryggisbúnaðar. Nám í skyndihjálp er hagnýtt og getur bjargað mannslífum. Rauði kross Íslands veitir upplýsingar um námskeið fyrir almenning og fyrirtæki.
Mikilvægt er að kunna að meðhöndla öryggisbúnaðinn. Meðal öryggisbúnaðar á heimilum og vinnustöðum ætti að vera:
■ Slökkvitæki
■ Reykskynjarar
■ Brunastigar eða brunakaðlar til undankomu af efri hæðum húsa
■ Verkfæri, svo sem hamar, sög, töng, rörtöng, skrúfjárn, skófla, öxi og kúbein
Heppilegt er að koma eftirtöldum búnaði fyrir í viðlagakassa sem allir þurfa að vita hvar geymdur er:
■ Sjúkrakassa
■ Vasaljósi
■ Útvarpi með rafhlöðum
■ Bæklingi um skyndihjálp
■ Lista yfir mikilvæg símanúmer (nákominna, þjónustuaðila o.fl.)
■ Neyðaráætlun fjölskyldunnar/vinnustaðarins
Ræðið og æfið viðbrögð við hættuástandi og látið börn taka fullan þátt í þeim.
Nánari upplýsingar:


